|
| Ég heiti Sara Bryndís og ég er 5 ára |
|
|
Ég heiti Sara Bryndís og ég er 5 ára. Ég fæddist þann 13 september 2004 kl. 05:04 og var 14.6 merkur og 50 cm. Ég á eina systur sem heitir Snædís Inga og er 13 ára, hún á 2 önnur systkini, Sara Dís er 7 ára og Grétar Atli 3. ára. Ég bý í Grafarvoginum með mömmu minni og Snædísi Ingu systur minni. Mamma mín heitir Heiðrún. Ég á líka hálfbróður sem heitir Jökull Elí og er 9 ára. Á Íslandi búa 835 sem eiga afmæli þann 13. september Á Íslandi búa 15 sem fæddust þann 13. september 2004 Móðuramma og afi heita Svava Steinunn ("32) og Sigurður Friðgeir ("31) hann lést 24. september 2009 Föðuramma mín hét Sara Bryndís ("48) , hún lést 20.desember 1996 og föðurafi minn heitir Gústaf Þór ("46) Mamma á 2 systur sem heita: Elínborg("53) hún á 4 börn þau heita Svava ("71), Eva ("77), Sigurður ("80) og Sigurbjörg ("83), og hún á líka 2 barnabörn Alexander Leifur ("91) og Svanhildur Ýr ("02) og síðan er það Heiðdís ("65) (mamma nr.2 hún er besta frænka í heimi og Sigvaldi maðurinn hennar pabbi nr. 2), hún á tvö stráka sem heita Þórður Karl ("91) og Erlingur ("00) og síðan á mamma einn bróðir sem heitir Jón Ingi ("61) hann á 3 börn þau heita Jóhann Ingi ("84), Tómas Aron ("86) og Berglind Sif ("90) Pabbi minn á tvö systkini þau heita Ágúst ("75) og Guðrún Olga ("70); Ágúst á 2 börn, þau heita Eyþór ("01) og Katrín Sara ("04) Guðrún Olga á 2 börn, þau heita Aron Már ("93) og Eva Lynn ("05) hún er 4 ára.
|
|
MEYJAN 23. ágúst - 22. september Hér er kominn einstaklingur sem vill hafa hlutina í röð og reglu og er mjög íhaldssamur. Litla meyjan er að öllu jöfnu auðveld í umgengni, samviskusöm, dugleg og hlýðin en oft á tíðum alvörugefin. Skynsemi meyjarinnar kemur yfirleitt fljótt í ljós og ef kæruleysi er ríkjandi í kringum hana er ekki ólíklegt að hún fari að siða fólk til í kringum sig og hafa vit fyrir því. Hún byrjar snemma að hjálpa til á heimilinu og er oft mjög handlagin. Hún er yfirleitt ekki mikið gefin fyrir að draga athyglina að sér og lítil meyjubörn geta oft haft ofan af fyrir sér sjálf í langan tíma. Foreldrar þurfa að draga fram hið jákvæða því litlar meyjur hafa oft áhyggjur af því að hlutirnir séu ekki nægilega vel gerðir. Því þarf að hjálpa þeim að sjá bjartari hliðar tilverunnar og læra að trúa á eigin getu. Ekki er verra að ýta undir skopskyn þeirra.
Snædís Inga systir Svanhildur Ýr frænka Inga Lilja frænka Sunna Karen frænka Tinna Líf frænka Eva Lynn frænka mín Eyþór og Katrín Sara frændfólk mitt Kári Steinn frændi Atli Ólafur vinur minn Konráð Björn og Rakel Karen Jóhann Áræll og Hlynur Helgi Matthías Logi og Arnaldur Logi frændur mínir Jóhanna Helga og Þuríður Anna Kári Freyr Struernar Heiðar Ágúst
Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það, sem ég fæ ekki breytt... kjark til að breyta því sem ég get breytt... og vit til að greina þar á milli.
ELSKU BARN. Ást mín verður með þér hvenær sem þú þarfnast hennar. Ást mín verður með þér þegar gleðin ber þig ofurliði. Ást mín verður með þér þegar erfileikarnir eru að buga þig . Ást mín verður með þér þegar þú óttast lífið . Ást mín verður með þér í dag og alla daga. Sara Nafn þetta er fengið úr biblíunni og merkir hefðarkona, - prinsessa. Bryndís Nafn þetta er myndað af forliðnum "Bryn" sem merkir brynja, - varin og viðliðnum "dís" sem merkir heilladís. Kannski er því vakað yfir Bryndísi eða hún vakir yfir og ver aðra.
Mamma er Konan Sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda. Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda. Þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til. Mamma er besta kona í heimi.
Til þín Áður en þú varst til þráðum við þig. Áður en þú komst í heiminn elskuðum við þig. Áður en þú hafðir lifað eina stund hefðum við fúslega dáið fyrir þig. Þú ert kraftaverk lífsins Takk fyrir að vera til
Leiddu mína litlu hendi, ljúfi faðir þér ég sendi. Bæn frá mínu brjósti sjáðu, blíði Jesú að mér gáðu. Hafðu gát á hjarta mínu, halt mér fast í spori þínu, að ég fari aldrei frá þér, alltaf Jesús, vertu hjá mér. Um þig alltaf sál mín syngi sérhvern dag, þó eitthvað þyngi. Gef ég verði góða barnið, geisli þinn á kalda hjarnið.
Bara Í Kvöld.... -ætla ég að halda á þér í fanginu og segja þér frá deginum þegar þú fæddist og hvers vegna mér þykir svona vænt um þig... -ætla ég að leyfa þér að busla og skvetta í baðinu og ekki verða reið út af vatninu á gólfinu... -ætla ég að leyfa þér að vaka lengi og skoða stjörnurnar á himninum... -ætla ég að kúra hjá þér eins lengi og þú vilt, þó að ég missi þá af uppáhaldsþættinum mínum... -ætla ég að dást að þér og vera þakklát fyrir að eiga gersemi eins og þig. Ég hugsa til mæðra sem hafa misst börn sín vegna veikinda eða slysa og mæðra sem dvelja á sjúkrahúsum með börnum sínum og berjast fyrir lífi þeirra. Ég er svo heppin að eiga þig og bið ekki um neitt... ...nema annan dag með þér...
ÞAÐ LÆRA BÖRN SEM ÞAU BÚA VIÐ! Það barn sem býr við hnjóð, lærir að fordæma. Það barn sem býr við hörku, lærir fólsku. Það barn sem býr við aðhlátur, lærir einurðarleysi. Það barn sem býr við ásakanir, lærir sektarkennd. Það barn sem býr við mildi, lærir þolgæði. Það barn sem býr við örvun, lærir sjálfstraust. Það barn sem býr við hrós, lærir að viðurkenna. Það barn sem býr við réttlæti, lærir sanngirni. Það barn sem býr við öryggi, lærir kjark. Það barn sem býr við skilning, lærir að una sínu. Það barn sem býr við alúð og vináttu, lærir að elska.
|
| Þú ert gestur nr. 20135 |